Leigulistinn


Úrdráttur úr verðskrá

 

·         Leigulistinn höfuðborgarsvæðið kr. 3.600.- eins mánaðar áskrift.

·         Leigulistinn - landsbyggðin kr. 3.950.- tveggja mánaða áskrift.

·         Skráning íbúða inná Leigulistann kr. 0.-

·         Þóknun fyrir miðlun og samningagerð vegna atvinnuhúsnæðis er sem nemur eins mánaðar húsaleigu að viðbættum vsk. ef samningar eru innan við 5 ár.

 

                (Ath. sjá ýtarlega verðskrá Leigulistans ehf. hér að neðan).

 

 

 

 

 

 

 

Í hverju er þjónusta Leigulistans fólgin?


Leigulistinn ehf. getur aðstoða við leit og miðlun á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Hér að neðan fer stutt lýsing á þjónustunni eins og hún snýr annars vegar að leigjandanum og hins vegar að leigusalanum.

 

Íbúðarhúsnæði
Leigjendur: Leigulistinn þjónar leigjendum í leit að íbúðarhúsnæði aðallega með aðstoð svokallaðs leigulista. Um leið og leigjandinn kaupir aðgang að þjónustunni fær hann lista yfir allar eignir á skrá hjá Leigulistanum ehf. Þjónustugjaldið fyrir eins mánaðar aðgang er krónur 3.600.- Þjónustusamningurinn tekur gildi um leið og greitt er og gildir í einn mánuð frá undirritun. Leigulistinn inniheldur allar helstu upplýsingar um skráðar eignir s.s. tegund, stærð, verð, staðsetningu, greiðslur í hússjóð, kröfur um tryggingar ofl. Þannig veitir listinn leigjandanum ágæta yfirsýn yfir markaðinn hvað varðar verð, hvað er í boði o.s.frv. Jafnframt hefur listinn að geyma nafn og síma hjá viðkomandi leigusala, sem leigjandinn getur haft beint samband við, en það sparar tíma og gerir listann að mjög virku og öflugu tæki til þessa að finna húsnæði.

Með tilkomu þessa vefs býður Leigulistinn nú leigjendum að skrá sig í gegnum netið og sækja og skoða nýjar upplýsingar um eignir um leið og þær berast. Einnig er boðið upp á þá nýjung að leigjendur geta nú skráð sig á póstlistann án aukakostnaðar og fengið sjálfkrafa tölvupóst um leið og íbúðin sem þeir eru að leita að kemur á skrá hjá Leigulistanum. Þannig sér tölvukerfi okkar um að vakta þær eignir sem koma á skrá fyrir leigjandan og láta hann vita um leið og eign kemur á skrá sem uppfyllir óskir leigjandans.
Leigjendur geta einnig óskað eftir því að Leigulistinn finni sérstaklega fyrir þá húsnæði gegn fyrirfram umsaminni þóknun. Til þessa hafa stærri fyrirtæki fyrst og fremst nýtt sér slíka þjónustu, þó að einstaklingar hafi einnig gert það.

 

Leigusalar: Leigulistinn býður leigusölum að skrá inn íbúðir á Leigulistann sér að kostnaðarlausu. Þetta geta leigusalar gert með einu símtali, eða beint í gengum netið ef menn hafa aðgang að því. Ein af algengustu spurningum leigusala er: "Hver greiðir fyrir þjónustuna ef hún er mér að kostnaðarlausu?". Jú, leigjendur greiða fyrir aðgang að þjónustunni. Með því að hafa þjónustuna leigusölum að kostnaðarlausu náum við að hámarka þann fjölda eigna sem streyma í gegnum listann hverju sinni og þannig fá leigjendur mest fyrir sinn snúð.

Einnig geta leigusalar fengið öllu hefðbundnari þjónustu sem felst í því að starfsmenn Leigulistans finna leigjanda fyrir leigusalann gegn þóknun. Þóknunin fyrir slíka þjónustu er sem nemur eins mánaðar húsaleigu fyrir íbúðina að viðbættum vsk.

 


Atvinnuhúsnæði
Leigusalar: Miðlun á atvinnuhúsnæði fer fram með hefðbundnum hætti þ.e. eignir eru teknar á skrá og þeim miðlað til leigjenda gegn þóknun. Þóknun er einungis greidd ef sölumenn Leigulistans ná árangri, þ.e. finna leigjanda að eigninni. Upphæð þóknunar fer eftir lengd leigusamnings, en hún nemur eins til tveggja mánaðar húsaleigu fyrir viðkomandi eign að viðbættum vsk (1-4 ár = 1m leiga, 5-9 ár 1,5m leiga, =>10 ár = 2m leiga). Innifalið í þóknun er skoðun, verðmat, myndataka, sýning á eigninni, gerð leigusamnings og allur nauðsynlegur skjalafrágangur við samningagerðina. Leigusali greiðir hins vegar sérstaklega fyrir auglýsingar.

 

Þegar sölumenn Leigulistans koma á staðinn til þess að skoða og taka eign á skrá eru teknar myndir af eigninni. Myndirnar eru á tölvutæku formi, sem gefur kost á að miðla eigninni á nútímalegan hátt og jafnframt getur viðskiptavinurinn sparað sér töluverðan tíma með heimskókn á skrifstofu okkar.

Leigulistinn miðlar atvinnuhúsnæði hönd í hönd við fasteignasöluna Tröð, sem er til húsa á sama stað. Þannig fá þeir sem eru opnir fyrir bæði sölu eða leigu á atvinnuhúsnæði sínu alla þjónustu á sama stað. Tröð er sennilega eina fasteignasalan hér á landi sem selur eingöngu atvinnuhúsnæði.

 

Leigjendur: Öfugt við íbúðarhúsnæði er þjónusta með atvinnuhúsnæði leigjendum að kostnaðarlausu. Leigjendur geta nálgast upplýsingar um eignir á skrá hjá okkur með því að heimsækja skrifstofu okkar, eða heimasíðu okkar, einnig veitum við fúslega upplýsingar í gegnum síma, með faxi og með tölvupósti.

 

 

 

 

 

 

 

 

Verðskrá Leigulistans ehf.

 


1.0  ALMENNT UM ÞÓKNUN
Þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts sem er 25,5% til viðbótar þóknun samkvæmt gjaldskránni.

 

2.0  LEIGA FASTEIGNA
2.1          Leiga atvinnuhúsnæðis.
a. Þóknun fyrir útleigu á atvinnuhúsnæði jafngildir 1,0 til 2,0 mánaðar húsaleigu fyrir það húsnæðið sem leigumiðlunin hefur milligöngu um og finnur leigjanda að allt eftir lengd leigusamnings, en þó aldrei lægri er kr. 65.000.- (herb. undanskilin). Þóknunin breytist sem hér segir;

i. Leigusamningar 0-4 ár; greiðist 1,0. mánaðar leiga + vsk. í þóknun 
ii. Leigusamningar 5-9 ár; greiðist 1,5. mánaðar leiga + vsk. í þóknun 
iii. Leigusamningar 10 ár eða lengur; greiðist 2,0. mánaðar leiga + vsk. í þóknun

b. Þóknun fyrir eign i einkaleigu jafngildir 90% af 1-2 mánaðar leigugjaldi, þó aldrei lægra en kr. 70.000.- + vsk.
2.2          Leiga íbúðarhúsnæðis.
a. Skráning íbúðar á Leigulistann er húseiganda að kostnaðarlausu. Aðilar sjá sjálfir um gerð leigusamnings.
b. Þóknun fyrir útleigu á íbúðarhúsnæði jafngildir 1,0 mánaðar húsaleigu fyrir það húsnæðið sem leigumiðlunin hefur milligöngu um að finna leigjanda að og sjá um leigusamningsgerð, en þó ekki lægri er kr. 70.000.- + vsk.
2.3          Skjalagerð.

Þóknun fyrir skjalagerð og frágang við leigusamning þegar leigukaup hafa átt sér stað utan leigumiðlunarinnar er 40% af eins mánaðar húsaleigu fyrir þá fasteign sem um ræðir, en þó aldrei lægri en kr. 55.000.- + vsk.

 

3.0  SKOÐUN OG MAT FASTEIGNAR.
Sé fasteign ekki sett í leigumeðferð en eign skoðuð og verðmetin reiknast þóknun samkvæmt tímagjaldi en þó að lágmarki  kr. 25.000.- auk vsk. fyrir mat á íbúðarhúsnæði. Fyrir skoðun og mat á atvinnuhúsnæði greiðast að lágmarki kr. 70.000.- auk vsk., en fyrir stærri eignir miðast gjald fyrir verðmat við allt að 0,1% af brunabótamati eignarinnar eða matsverði hennar, eftir því hvor talan er lægri, eða skv. tímataxta. Leigist atvinnuhúsnæði innan 15 daga frá því að eignin er tekin í leigumeðferð fyrir tilstuðlan annars aðila en Leigulistans ehf., innheimtist skoðunargjald kr. 23.000.- + vsk.

 

4.0 ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF.
Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi.

 

5.0 ÝMIS ÁKVÆÐI.
5.1 Viðskiptamaður greiðir fast gjald kr. 8.800.- vegna öflunar ganga um eignir, svo sem vegna veðbókavottorða, ljósrit teikninga og ýmissa skjala. Fyrir eignir sem ekki eru leigðar út hjá Leigulistanum ehf. greiðist fast gjald kr. 3.500.- Auk framangreinds greiðir viðskipamaður allan beinan útlagðan kostnað vegna útvegunar gagna og  vottorða.
5.2 Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni. Fyrir myndatöku á eign greiðist kr. 8.000.
5.3 Annast leigumiðlunin sýningu fasteignar reiknast gjald kr. 6.500.- fyrir hverja sýningu, sem bætist við umsamda þóknun.

 

6.0 TÍMAGJALD.
Tímagjald er kr . 11.500.-

 

7.0 AKSTURSKOSTNAÐUR OG DAGPENINGAR.
Heimilt er að reikna kostnað við akstur og ferðir með hliðsjón af reglum fjármálaráðuneytisins um aksturskostnað og dagpeninga.

 

 

Reykjavík 1. janúar 2012
Guðlaugur Örn Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri.

 


©LEIGULISTINN - SKIPHOLTI 50b - 105 REYKJAVÍK - SÍMI: 511-1600 - FAX: 562-2330 - NETFANG: ibud@leigulistinn.is